20.5.2008 | 18:59
Mér finnst hrefnukjöt gott
Hagsmunaaðilar fagna hrefnuveiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2008 | 16:11
I could die now!
Fyrsta útförin á vegum Siðmenntar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2008 | 19:24
er til eitthvað ómerkilegra?
ég gæti greinilega alveg verið blaðamaður með 350.000 í laun í stað þess að vera kennari á 181.000. ég þyrfti ekkert að hafa fyrir starfinu. ég gæti borðað slæmt pasta, gubbað því og skrifað um það.
Skiptir 81 sinni um föt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2008 | 14:21
Vörubílstjórar skíta uppá bak
Hvað í andskotanum á það að þýða að kasta steini í hausinn á löggunni?!
Og mótmælin í gær... ég á varla til orð yfir því hvað þau voru heimskuleg! já, strákar, Abbas er eftir að segja fólkinu sínu í Palestínu frá því að vörubílstjórum á Íslandi finnist bensín dýrt og séu ósáttir við hvíldartímann sinn og fólkið í Palestínu mun finna til með ykkur og standa við bakið á ykkur. .....NAT.
nú er komið nóg af þessari vitleysu, takk fyrir
kem ekki fram undir nafni því ég vil ekki fá stein í hausinn!
Lögreglumaður á slysadeild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.3.2008 | 17:49
auglýsingar
þessi mynd tengist blogginu ekki, en mér finnst hún fyndin. Ég hef ekki bloggað lengi. enda nóg að gera. en núna er ég með þessa glötuðu flensu og er að kafna úr leiðindum. Ég er búin að glápa á tv í fyrsta skipti í mörg ár og ég verð að segja að ég skil ekki mikið í þessum auglýsingum. T.d. klósettpappírsauglýsingar. Það er ein sem auglýsir lambi skeinipappír og það er barn sem knúsar lítið sætt lamb og það er súmað inn á mjúka lambið og út aftur og þá er það klósettpappír sem er extra-mjúkur. Hvað er málið? erum við að skeina okkur á lambi ef við kaupum þennan pappír því að hann er búið til úr litlum sætum lömbum eða hvað er verið að segja? Afhverju eru klósettpappírsauglýsingar ekki eins og Silly-Bang auglýsingarnar? Þar er juðast á drullunni og með silly-bang þá bara þurkaru hana burt með einni stroku. Sérðu ekki fyrir þér auglýsingu þar sem einhver er ekki að ná hægðunum af rasskinnunum, nuddar upp og niður, en tekur svo upp lambi skeinirúllu og með einni stroku er allur kúkurinn farinn? eða dömubindaauglýsingu.... í þeim er alltaf verið að hella bláum vökva í bindið eða setja það í fiskabúr... WTF. Hvað með að sýna "europris" dömubindi sem heldu engu og allt er í messi, blóð út um allt, á stólnum sem kéllingin sat á og allt... og svo fallega stúlku með libresse sem hún togar niður og segir: "sjáðu, ég er búin að vera með þetta í 7 tíma og það er ennþá ekki neitt búið að sullast útfyrir" -alvöru blóð og allt, því að þannig er það í raunveruleikanum. Það er enginn að kaupa dömubindi fyriri bláan tilranaunavökva.
já. ég er veik...
ég var vön að skirfa um málefni sem skipta máli en eftir að ég gerðist kennari þá varð ég að hætta að koma fram undir nafni og ef ég kem með einhverja athugasemd um "útlendingaumræðuna" eða önnur málefni, þá gerir fólk ekki annað en að grenja undan því að meður komi ekki fram undir nafni. ...einu rökin sem sumir hafa. By the way, þá er ég ekki framsóknarmaður og hef ekkert á móti útlendindingum. Við erum öll af erlendu bergi brotin.Svo að ég slæ bara á létta strengi og læt þetta blogg vera persónulega dagbók sem er opin vinum og vandamönnum og læt það vera að berjast gegn kynþáttahatri og öðru óréttlæti í samfélaginu, í bili.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2008 | 22:01
góða helgi
heldur þú að ég eigi framtíð fyrir mér með þetta? kannski vinnu hjá Pixar?
...skoðaðu meðfylgjandi stuttmynd!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2008 | 20:31
Indland Fyndland!! Brilliant myndbönd!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2008 | 20:25
Nokkur myndbönd af YouTube (part 1)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2008 | 16:49
Daily show! þið verðið að sjá þetta
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2008 | 20:11
ný byrjun
Jæja, þá hef ég ákveðið að henda gamla blogginu mínu og byrja upp á nýtt.
Fyrsta bloggfærlsan mín er svona:
Þættirnir Moonlight, eru allra verstu þættir sem hafa verið gerðir, nokkurntíman!! EKKERT er verra en þessir þættir. Ég skal glöð mæta aftur í tíma hjá Hilmari Mokk frekar en að horfa á þennan sora.
Ég er að horfa á þátt um "string theory" og Einstein kemur auðvitað við sögu. Alltaf þegar við tölum um eðlisfræði og Einstein, hugsa ég til þess hversu frægur og dýrkaður hann var. Hann var stjarna!! Aðrir menn sem voru gáfaðir og gerðu merkar uppgvötanir voru líka algerar "rokkstjörnur". En í dag er það kúl að vera heimskur. Fræga fólkið í dag er frægt fyrir að dópa, vera yfirnáttúrulega heimskt, keyra fullt, ríða öllum og setja kynlífsmyndband af sér á netið. Afhverju er það kúl að vera svo mikill fáviti að þú getir flokkast undir það að vera andlega þroskaheftur? Ég verð vör við það hjá kvenkyns nemendum mínum að þær láta eins og þær séu gjörsamlega tómar í hausnum, vegna þess að það er kúl. Þetta eru stúlkur sem eru ekki heimskar, fá 9,5 á prófi, en þykjast vera fávitar til að ganga í augun á öðrum. AFHVERJU?
"Ímyndunarafl er mikilvægara en þekking. Þekking er takmörkuð. Ímyndunaraflið spannar allan heiminn" - Albert Einstein
Bloggar | Breytt 2.1.2009 kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)