Tveir giftir sitja á barnum og eru að spjalla saman.

"Ég skil ekkert í þessu, í hvert skiptið sem ég fer heim af barnum þá

slekk ég á aðalljósunum á bílnum og læt hann renna hljóðlega inn í

innkeyrsluna. Ég passa að skella ekki hurðinni og læðist á sokkunum

upp stigann, fer úr fötunum áður en ég kem inní svefnherbergi og

leggst varlega í rúmið. Samt æpir konan mín á mig að ég eigi ekki að

koma svona seint heim því ég veki hana alltaf!"

"Iss" segir hinn. "Þú ert að gera þetta alveg vitlaust. Þegar ég fer

Heim þá stilli ég á háu ljósin þegar ég kem inn götuna og skransa inn í

bílastæðið og flauta. Ég skelli hurðinni og hleyp upp stigann, hossa

mér uppí rúm, slæ hana á rassinn og segi HVER ER GRAÐUR?" "Einhvern

veginn þá þykist hún alltaf vera sofandi."blasphemy


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband