Skoti nokkur gekk niður Laugaveginn..

111307_ceiling_cat og mætti þá ungri konu sem hafði augljóslega stórkostlega falleg brjóst. Hann spyr konuna hvort hann megi narta í brjóstin á henni fyrir 100 pund. Konan segir " Ertu eitthvað klikkaður?!", og strunsar í burtu.

Skotinn eltir ungu konuna og spyr; "En fyrir 1.000 pund?" Konan svarar: "Heyrðu mig góði! Ég er ekki þannig kona, skilurðu það?!".

Skotinn gefst ekki upp og eltir konuna áfram og segir nú; " En fyrir 10.000 pund!?". Konan stoppar og hugsar sig um svolitla stund og segir svo; "Hmmm, 10.000 pund, ok en bara einu sinni, en ekki hér. Komdu inn í þetta dimma húsasund hérna".

Þau fara inn í húsasundið og konan fer úr bleika bolnum sínum og í ljós koma, eins og Skotann hafði grunað, sennilega fallegustu brjóst í veröldinni. Skotinn tók andköf þegar hann horfði eins og dáleiddur á og leggur lófa sína yfir brjóstin og fer að kreista þau og strjúka blíðlega, grefur svo andlit sitt á milli þeirra og fer að kyssa og sleikja geirvörturnar, en nartar ekki.

Konan verður óróleg og pirruð og segir; "Jæja, ætlarðu ekki að narta í þau?".

"Neeee", segir skotinn. "það kostar of mikið".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband